• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Nikótínvörur felldar undir lög um rafrettur samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra

Nikótínvara telst sú vara sem ekki er til innöndunar og inniheldur nikótín, hvort sem nikótínið er unnið úr tóbaki eða ekki og varan inniheldur að öðru leyti ekki önnur efni sem unnin eru úr tóbaki, til dæmis nikótínpúðar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2022
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Gert er ráð fyrir að sömu reglur muni í meginatriðum gilda um nikótínvörur og nú gilda um rafrettur samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra sem hann mælti fyrir á Alþingi í gær. Meginmarkmiðið er að tryggja gæði og öryggi þessa varnings og tryggja með tiltækum ráðstöfunum að börn kaupi hvorki né noti nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

Frumvarpið felur í sér breytingu á gildandi lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur og mun heiti laganna breytast til samræmis við efnið og verður „lög um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur“. Nikótínvara telst sú vara sem ekki er til innöndunar og inniheldur nikótín, hvort sem nikótínið er unnið úr tóbaki eða ekki og varan inniheldur að öðru leyti ekki önnur efni sem unnin eru úr tóbaki, til dæmis nikótínpúðar.

Helstu efnisatriði frumvarpsins eru þessi:

  • Innleitt verður 18 ára aldurstakmark við kaup og sölu á nikótínvörum líkt og gildir um rafrettur og áfyllingar á þær.
  • Óheimilt verður að auglýsa nikótínvörur, á sölustöðum mega þær ekki vera sýnilegar og óheimilt verður að merkja umbúðir með texta eða myndmáli sem höfðar til barna og ungmenna.
  • Óheimilt verður að selja nikótínvörur í grunn- og framhaldsskólum og á öðrum stöðum sem ætlaðir eru til félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna.
  • Óheimilt verður að flytja inn, framleiða og selja nikótínvörur og rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur sem innihalda bragðefni sem kunna að höfða til barna, svo sem nammi- og ávaxtabragð.
  • Eftirliti með öryggi nikótínvara og merkingum og eftirlit með auglýsingabanni verður hagað á sama hátt og nú gildir um rafrettur og áfyllingar á þær.

Með framangreindum breytingum verða settar skýrar reglur um hvernig heimilt er að markaðssetja og selja nikótínvörur sem hefur ekki verið kveðið á um fram að þessu í lögum.

  • Frumvarpið og ferill málsins á Alþingi
Umræða
Share22Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?