EuroJackpot – 2. vinningur til Íslands – tæpl.100 milljónir
Enginn var með 1. vinning þennan föstudaginn en fimm miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 99,3 milljónir. Þar af var einn miðinn keyptur á Íslandi, nánar tiltekið í Bitahöllinni við Stórhöfða í Reykjavík.
Hinir miðarnir voru keyptir í Slóvakíu, Noregi og tveir í Þýskalandi. 3. vinningur skiptist á milli níu miðaeigenda og fær hver þeirra rúmlega 19,6 milljónir, þeir miðar voru keyptir í eftirtöldum löndum; Hollandi, tveir í Svíþjóð, Finnlandi og fimm í Þýskalandi.
Þrír voru með 2. vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur, tveir miðanna voru keyptir í appinu en einn er í áskrift.
Umræða