Herjólfur tók niðri á útleiðinni frá Landeyjahöfn
Herjólfur tók niðri á útleiðinni frá Landeyjahöfn í hádegisferðinni á föstudag.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Sæferða sagði í samtali við Eyjafréttir að af þessum sökum var tekin ákvörðun um að seinka næstu brottför frá Eyjum úr 15:30 í 17:00 og frá Landeyjahöfn úr 17:10 í 17:45 og sigla svo það sem eftir lifði dagsins skv. áætlun.
„Dýpkunarskip var á vettvangi og var skipstjóri Herjólfs í sambandi við kollega sinn þar og því fór dýpkunarvinna strax af stað þar sem Herjólfur tók niðri. Þetta er aldrei gott og erfitt að þetta sé staðan þegar einn og hálfur mánuður er síðan höfnin opnaði í byrjun mars,“ sagði Gunnlaugur í viðtali við Eyjafréttir
Umræða