Aðalmeðferð í máli geðhjúkrunarfræðings á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Umfjöllun um það sem fram kemur við þinghaldið er bönnuð þar til í lok dags. Steina Árnadóttir, 62 ára gamall geðhjúkrunarfræðingur, er ákærð fyrir manndráp í opinberu starfi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Hún neitar sök.
Henni er gefið að sök að svipta konu á sextugsaldri sem var sjúklingur á geðdeild 33A á Landspítalanum við Hringbraut lífi með því að þröngva ofan í hana tveimur flöskum af næringardrykk í ágúst árið 2021. Steina hafi hellt drykknum upp í munn konunnar á meðan henni var haldið að fyrirskipan geðhjúkrunarfræðingsins þrátt fyrir að konan hafi neitað að neyta hans. Drykkurinn hafi hafnað í loftvegi konunnar sem olli því að hún kafnaði.
Samkvæmt frétt Vísis um málið krefjast aðstandendur konunnar fimmtán milljóna króna í bætur.
Landspítalinn hefur viðurkennt að aðstæður á geðdeildinni hefðu verið ófullnægjandi og að spítalinn hefði brugðist starfsfólki en ráðist hafi verið í úrbætur innan geðþjónustunnar eftir andlát konunnar. Það hafi verið gert með því að fjölga heilbrigðismenntuðu starfsfólki á vöktum, auka stoðþjónustu við deildir og breyta innra skipulagi þjónustunnar.
Meðal um þrjátíu vitna sem leidd verða fyrir dóminn er að sögn Rúv, Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans. Dómurinn er fjölskipaður en sérfræðingur í bráðalækningum verður meðdómari tveggja dómara Héraðsdóms Reykjavíkur.
Umræða