Fram kom í viðtali hjá ríkisútvarpinu við Ástþór Magnússon, að fjölmiðlar og þar á meðal ríkisútvarpið reyni að hafa áhrif á forsetakosningarnar með því að hampa ákveðnum frambjóðendum á kostnað annara og að sama sé í gangi hjá Stöð tvö.
Þá sagði hann að í stóru boði sem Ásdís Rán hélt þar sem allir frambjóðendurnir mættu ásamt stuðningsmönnum, hafi hún beðið allan salinn um að rétta hönd ef einhver þar inni hefði tekið þátt í skoðanakönnun, þ.e. ef eitthvert fyrirtæki hefði haft samband varðandi forsetakjörið.
,,Þetta var fullur salur og mjög mikill fjöldi fólks saman kominn, en enginn rétti upp hönd. Ekki hafði verið haft samband, hvorki símleiðis eða með tölvupósti við nokkurn mann. Það er verið að reyna að hafa áhrif á kjósendur á mjög óheiðarlegan hátt og með undirferli. Fólk er endalaust matað á röngum upplýsingum“ Sagði Ástþór Magnússon sem trúir ekki á þá ,,umræðu og kannanir sem sagt er að séu í gangi.“
Þá má geta þess að Fréttatíminn er með skoðanakönnun, þar sem hátt í 10.000 manns hafa tekið þátt í og aðeins er hægt að kjósa einu sinni og er hún varin fyrir tölvuþrjótum. Könnunin hefur vakið mjög mikla athygli vegna þess að hún sýnir aðra niðurstöðu en aðrar kannanir.
https://frettatiminn.is/16/05/2024/konnun-dagsins-hvern-aetlar-thu-ad-kjosa/