Norðaustlæg átt ríkjandi næstu daga. Fremur þungbúið fyrir norðan og austan og væta á köflum. Hiti yfirleitt 8 til 14 stig. Bjartara og mun þurrara sunnan- og vestantil en áfram líkur á skúrum, einkum síðdegis og hitinn gæti farið upp undir 20 stiginn þar sem best lætur.
Talsvert flökt er á spánum og er það aðallega vindhraði sem spárnar eiga erfitt með að reikna rétt. Því er ágætt að hafa það í huga að ef verið er að ferðast með aftanívagna að margir hverjir þola ekki meir en 12-15 m/s áður en hætta fer að skapast, en þannig aðstæður geta myndast við fjöll og ber því að hafa varann á sér.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustlæg átt, 5-15 m/s, hvassast NV-til. Rigning eða súld á A-verðu landinu, en annars skýjað með köflum, en lítilsháttar væta NV til um tíma í kvöld og nótt.
Lægir smám saman í nótt og styttir víða upp, norðlæg eða breytileg átt, 3-8 og allvíða skúrir á morgun, einkum inn til landsins. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir sunnan.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Austan og norðaustan 8-15 m/s, hvassast á annesjum og víða rigning, en úrkomulítið á V-landi. Austlægari um kvöldið og áfram rigning. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast syðst.
Á laugardag:
Suðaustan 5-10 m/s og rigning víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á NA-landi.
Á sunnudag:
Suðaustlæg átt og rigning með köflum S til, en annars úkomulítið. Hiti víða 13 til 18 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt með vætu í flestum landshlutum, síst þó á N-landi, en áframhaldandi hlýindi.
Spá gerð: 24.07.2019 07:52. Gildir til: 31.07.2019 12:00.