Klukkan sjö í gærkvöld, var tilkynnt um slys við Heiðmerkurveg í Garðabæ. Að sögn vitnis mun maður hafa fundið sprengju í rjóðri við göngustíg í Heiðmörk. Maðurinn mun hafa farið að eiga við sprengjuna en þá hafi komið hár hvellur og hann hafi slasast mikið á hendi.
Maðurinn var fluttur á Bráðadeild til aðhlynningar. Lögreglan segir í tilkynningu sinni að um erlenda aðila hafi verið um að ræða og miklir tungumálaörðuleikar hefðu torveldað skýrslutöku á staðnum.
Umræða