Fíkniefni haldlögð
Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Móðirin er á fertugsaldri en sonur hennar á sextánda aldursári.
Þau voru bæði úrskurðuð í gæsluvarðhald til föstudagsins 23. september. Pilturinn er sökum ungs aldurs vistaður á stofnun ætluð fyrir ungmenni en gistir ekki fangageymslur meðan gæsluvarðhald varir. Rannsókn málsins, sem unnið var í samstarfi lögreglu og tollgæslu, miðar vel. Vegna rannsóknarhagsmuna getur lögregla ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða