Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur lýst yfir hættustigi vegna yfirvofandi óveðurs á morgun
Okkar verðmætu samstarfsmenn á Veðurstofunni rýna nú í veðurspá næsta sólarhringsins. Búið er að boða rauða viðvörun vegna fyrirsjáanlegs óveðurs á Austfjörðum á morgun og appelsínugul viðvörun er fyrir Suðausturland. Vegagerðin boðar að búast megi við lokun vega frá Kirkjubæjarklaustri og austur um frá því snemma í fyrramálið allt þar til veðrinu slotar, mögulega ekki fyrr en á aðfaranótt mánudags. Veðurfræðingar hafa varað við því að í verstu útkomu gæti komið til þess að færa þurfi viðbúnaðarstigið á rautt fyrir Suðausturland um tíma á morgun.
Í stuttu máli er þetta þannig:
Appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir Suðausturland frá því klukkan 06:00 í fyrramálið og fram til klukkan 03:00 á aðfaranótt mánudags. Norðvestan 20-28 m/s með vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Fólk er hvatt til að tryggja lausamuni. Ekkert ferðaveður.
Gul viðvörun er fyrir vesturhluta Suðurlands frá því kl. 10:00 á morgun til klukkan 21:00. Norðvestan 18-23 m/s undir Eyjafjöllum og vindhviður yfir 30 m/s. Varasamt að vera á ferðinni á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum.
Við hvetjum fólk til að fylgjast vel með veðurspám, ferðaþjónustuaðila til að upplýsa ferðamenn um veðurspár og á Suðausturlandi er eins og áður sagði ekkert ferðaveður. Aðgerðastjórn verður mönnuð á skrifstofu lögreglustjóra ef farið verður yfir á rautt í umdæminu.
https://gamli.frettatiminn.is/24/09/2022/raud-vidvorun-vegna-vedur-hvidur-allt-ad-60-m-s/