• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samstarf um hentugasta orkugjafa Borgarlínu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Landsvirkjun, Strætó, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin hafa efnt til samstarfs um greiningu á hentugasta orkugjafa fyrir Borgarlínu

Borgarlínan hefur verið í þróun um árabil, en nú er komið að því að taka markviss skref til að byggja undir ákvörðun um orkugjafa Borgarlínu. Fyrir liggur að orkugjafinn á að vera  vistvænn og innlendur. Verkefnið er unnið í tengslum við fyrstu framkvæmdir Borgarlínu sem eiga að hefjast árið 2021 og leiðarkerfisbreytingu Strætó sem unnið er nú að í samvinnu við verkefnastofu Borgarlínu og miðað er við að komi til framkvæmda með akstri fyrstu tveggja Borgarlínuleiða árið 2023.
Borgarlínan verður hluti af leiðarkerfi Strætó bs., en fyrirtækið hefur verið leiðandi í orkuskiptum á Íslandi og hefur haft þá stefnu að kaupa ekki fleiri dísilvagna fyrir strætisvagnakerfi höfuðborgarsvæðisins.
Vetni, rafhlöður og metan – mismunandi styrkleikar orkugjafa
Markmiðið er að orkugjafi Borgarlínu verði vistvænn og innlendur. Vetni, rafhlöður og metan hafa mismunandi eiginleika og koma allir til greina fyrir vagna Borgarlínu.
Við valið á orkugjafanum er mikilvægt er að meta orkukostnað og fjárfestingakostnað, auk þess sem taka þarf tillit til margra þátta eins og staðsetningu áfyllingastöðva, rekstraröryggis, útstreymi gróðurhúsalofttegunda, skipulagsmála, staðbundinnar loftmengunar, hljóðmengunar og fleira yfir líftíma verkefnis.

Meðfylgjandi ljósmynd af fulltrúum samstarfsaðila við undirritunina. Frá vinstri: Lilja G. Karlsdóttir, Hörður Arnarson, Haraldur Hallgrímsson, Stefanía G. Halldórsdóttir, Hrafnkell Á. Proppé, Bergþóra Þorkelsdóttir, Bryndís Friðriksdóttir, Auður Nanna Baldvinsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson og Helgi Jóhannesson

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?