Brot 45 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á móts við Kleppsveg 60.
Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 567 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.
Brot 7 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í suðurátt, á móts við Álfaskeið 113. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.
Brot 150 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, við Lögbergsbrekku. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 363 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.