Tvö snjóflóð féllu um Eyrarhlíð á Vestfjörðum og tvö flóð féllu á Siglufjarðarveg í gærkvöldi. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á Vestfjörðum.
Snjóflóðin á Vestfjörðum féllu um Eyrarhlíð milli Skutulsfjarðar og Hnífsdals. Annað þeirra var tiltölulega stórt
Súðavíkurhlíð og samgöngur á milli byggðakjarna.
Lögreglan á Vestfjörðum vill vekja athygli á að vegna snjóflóðahættu var veginum um hliðina lokað kl 22:00 í gærkvöld. Miðað við veðurspá eru líkur á að ekki verði hægt að opna hann fyrr en að veðrið gengur niður. Auk þess eru talsverðar líkur á að aðrir vegir á milli byggðakjarna lokist vegna veðurs.
Óvissustig v. snjóflóðahættu er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og hefur lögreglan haft samband við þá íbúa, þar sem búast má við rýminu síðar í kvöld eða nótt, vegna snjóflóðahættu.
Gul veðurvörun er í gildi núna fram á sunnudagskvöld en appelsínugul viðvörun er í gildi í fyrramálið að morgni aðfangadags og segir þar:
Norðan stormur með vindhraða á bilinu 18-25 m/s. Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s. Einnig er spáð talsverðri eða mikilli snjókomu og éljagangi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Víðtækar samgöngutruflanir líklegar og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Ef einhverjir þurfa að vera á ferðinni skulu því gera ráðstafanir að vera vel búnir og afla sér upplýsingar um færð áður en lagt er af stað.