Hugleiðingar veðurfræðings
Gengur á með sunnan hvassviðri eða stormi, hvassast á norðanverðu landinu. Rignig auk þess sunnan- og vestantil, talsverðr eða mikil rigningu á Breiðafirði og Vestfjörðum. Gular og appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi og fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Yfirleitt skýjað, en þurrt norðaustanlands. Óvenju hlýtt er í veðri, en hiti gæti náð 18 stigum í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi.
Dregur smám saman úr vindi árla jóladags, en allhvöss eða hvöss sunnanátt seinnipartinn og rigning eða súld með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu, en léttir til norðaustanlands. Áfram hlýtt veður. Lægðardrag nálgast vestanvert landið seinnipartinn og fer að rigna talsvert vestantil seint um kvöldið.
Aðfaranótt annars í jólum hreyfist lægðardragið ákveðið til austurs yfir landið og kólnar talsvert. Því fylgir rigning eða slydda á láglendi og snjókoma til fjalla, en í kjölfarið rofar til og líkur á smá slyddu- eða snjóéljum vestantil seinnipartinn. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig er kemur fram á daginn. Spá gerð: 24.12.2025 15:39. Gildir til: 26.12.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Sunnan og suðvestan 15-25 m/s, hvassast í vindstrengjum á norðanverðu landinu. Rigning á sunnan- og vestanverðu landinu, talsverð eða mikil norðvestantil, en þurrt að kalla eystra. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi.
Sunnan 10-18 m/s á morgun og áfram rigning eða súld, en léttir til á Norður- og Austurlandi. Vestlægari norðvestantil annað kvöld og bætir í rigningu vestanlands. Áfram hlýtt í veðri.
Spá gerð: 24.12.2025 14:48. Gildir til: 26.12.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag (annar í jólum):
Vestan og suðvestan 10-18 m/s og víða rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla framan af degi, síðan lítilsháttar snjó- eða slydduél og rofar til fyrir austan. Hiti 0 til 5 stig.
Á laugardag:
Sunnan og suðvestan 8-13 m/s, sums staðar dálítil væta og hiti 1 til 6 stig. Hægari og þurrt austanlands með hita kringum frostmark, en hvessir og hlýnar þar seinnipartinn.
Á sunnudag og mánudag:
Suðvestlæg átt, dálítil væta öðru hvoru og hiti 1 til 6 stig, en bjart að mestu og hiti nálægt frostmarki fyrir austan.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir hæga suðlæga eða breytilega átt og þurrviðri, en hvessir með rigningu vestantil undir kvöld. Hlýnar smám saman í veðri.
Spá gerð: 24.12.2025 08:14. Gildir til: 31.12.2025 12:00.

