Matvælastofnun fékk ábendingu vegna hrossahalds á höfuðborgarsvæðinu
Þann 22. febrúar s.l. fékk Matvælastofnun ábendingu vegna hrossahalds á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirlit var framkvæmt samdægurs þar sem fram komu frávik við umhirðu hrossanna og aðbúnað. Stofnunin gerði í kjölfarið tímasettar kröfur um úrbætur, þar með talið kröfu um sérstaka umönnun á einu hrossanna.
Matvælastofnun mun fylgja kröfunum eftir innan gefins frests. Við mat á því hvort úrbætur þola bið eða ekki er ætíð tekið mið af ástandi og líðan þeirra dýra sem í hlut eiga. Í þessu tilviki höfðu hrossin aðgang að heyi við skoðunina og voru öll að éta. Í þeim tilvikum þegar mál þola ekki bið beitir Matvælastofnun úrbótum samdægurs, s.s. vörslusviptingu, en ekki var tilefni til þess að þessu sinni.
Umræða