,,Það má aldrei henda að heilu atvinnugreinarnar komist í þrot og bankar selji svo fyrirtækin“
Nú má öllum vera ljóst að það þarf neyðaraðgerðir frá stjórnvöldum og að þær aðgerðir þurfi að vera í samræmi við ástandið.
Það er innan við vika í mánaðamót og fyrirtæki sem hafa litlar eða engar tekjur munu ekki ráða við að greiða 25% af launum hvað sem líður öðrum kostnaði. Þau munu ekki heldur ráða við að greiða uppsagnarfrest og fara þá í þrot.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu og önnur sem geta ekki aflað sér tekna við þessar aðstæður verða að fá tækifæri til að „leggjast í híði”. Ég hef orðað það þannig að það verði að vera hægt að vakúmpakka þeim og setja þau í frost svo þau verði fersk þegar þau geta starfað aftur.
Það er best fyrir samfélagið, heimilin, fyrirtækin og starfsfólk að komið verði í veg fyrir fjöldagjaldþrot. Ef það tekst komumst við hratt af stað aftur og höldum áram þar sem frá var horfið af fullum krafti.
Það má aldrei henda að heilu atvinnugreinarnar komist í þrot og bankar selji svo fyrirtækin þegar rofar til.
Fjölmargt fólk hefur lagt allt sitt undir og byggt upp verðmætasköpun í samfélaginu, skapað störf og greitt sitt í sameiginlega sjóði. Nú þurfum við að standa með því fólki, fyrirtækjunum og störfunum sem þau hafa skapað.