Enginn flokkur á Alþingi að berjast gegn spillingu
Dæmdir glæpamenn voru í hópi þeirra sem fengu 48 milljarða gefins frá íslenskum almenningi í boði stjórnvalda, þegar Seðlabanka Íslands var heimilað að gefa þeim sem sendu a.m.k. 250 milljarða til landsins af öllum þeim hundruðum milljarða sem hurfu á Íslandi fyrir og eftir síðasta hrun. Stjórnvöld hylma yfir þessum hópi með því að veita hvorki almenningi eða skattayfirvöldum, upplýsingar um uppruna fjárins. Það er enginn flokkur á Alþingi að berjast gegn spillingu, heldur þvert á móti, þá er skjaldborg um glæpahópa og spillinguna á Íslandi. Enda hafa allar kannanir frá hruni sýnt að íslendingar treysta ekki Alþingi. Alþingi hefur alltaf verið lægst í þeim könnunum þegar traust til ríkisstofnana hefur verið mælt.
Fimm fjölskyldur eiga Ísland, fákeppnin er alger og Ísland er ónýtt með sama áframhaldi, þetta er eins og Mattador, þau eiga allt Ísland eins og það leggur sig og stjórna þjóðfélaginu, þetta hefur m.a. verið staðfest af seðlabankastjóra Íslands.
Þetta og margt fleira er hægt að hlusta á í pistli dagsins:
Sunnudagspistill
https://fb.watch/54_cgKKLt7/
Posted by Guðmundur Franklín Jónsson on Sunday, 25 April 2021