• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 1. desember 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
Áskrift
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Utanríkisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins

by Ritstjórn
5. maí 2023
in Erlent, Fréttir
0
Utanríkisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins

Þórdís Kolbrún ávarpar þing Evrópuráðsins

Deila á FacebookDeila á X

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og forseti ráðherranefndar Evrópuráðsins lagði þunga áherslu á grunngildi Evrópuráðsins, mannréttindi, lýðræði og réttarríki, er hún ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg í dag. Í ræðu sinni sagði utanríkisráðherra að þessi grunngildi ættu að vera leiðarljós í allri ákvarðantöku, ekki aðeins á alvarlegum umbrotatímum eins og nú þegar stríð geysar í Evrópu.

„Í stað þess að velja þá leið sem virðist hentugust hverju sinni eða er arðbær til skamms tíma ættum við að velja þær leiðir sem þjóna æðri hugsjónum okkar,” sagði Þórdís Kolbrún meðal annars í máli sínu.

Ásamt því að líta yfir farinn veg í formennsku Íslands og komandi leiðtogafund Evrópuráðsins 16. og 17. maí í Reykjavík ítrekaði ráðherra jafnframt staðfastan stuðning og samstöðu við Úkraínu sem væri ein af megináherslunum í formennskutíð Íslands.

„Við höfum unnið hörðum höndum að því að tryggja að niðurstaða leiðtogafundarins í Reykjavík í maí styrki samstöðu okkar enn frekar,“ sagði utanríkisráðherra.

Þing Evrópuráðsins kemur saman í Strassborg fjórum sinnum á ári og er formennskuríkið Ísland áberandi að þessu sinni en auk utanríkisráðherra mun forseti Íslands ávarpa þingið síðar í vikunni.

Fyrr í dag átti Þórdís Kolbrún jafnframt fundi með Tiny Kox, forseta Evrópuráðsþingsins og Mariju Pejčinović Burić, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Í gær fundaði utanríkisráðherra með bandaríska fjárfestinum og mannréttindafrömuðinum Bill Browder og með þingmönnum í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins.

Í kvöld opnar utanríkisráðherra svo sérstaka móttöku sem haldin er í tengslum við sýnileikaviku lesbía (e. Lesbian Visibility Week) í Strassborg og á vettvangi Evrópuráðsins. Viðburðurinn er hluti af formennskuáætlun Íslands og var skipulagður með skrifstofu Evrópuráðsins um réttindi hinsegin fólks og hópi lesbískra aðgerðarsinna, EL*C.

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Marija Pejčinović Burić, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins. - mynd
  • Þórdís Kolbrún og Tiny Kox, forseti Evrópuráðsþingsins - mynd
Umræða
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Móðir handtekin vegna tálmunar – Börnin finnast ekki

    196 deilingar
    Share 78 Tweet 49
  • Banaslys í Reykjanesbæ

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Frosti fjallar um mál Eddu – ,,Hreint og klárt tálmunar- og barnaránsmál“

    74 deilingar
    Share 30 Tweet 19
  • Tannlækningar á 70 prósent lægra verði

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Tekjuskerðing getur hlaupið á milljónum

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?