Eigendur gríssins sem var týndur, hafa gefið sig fram . ,,Þökkum aðstoðina“ segir lögreglan fyrir norðan sem birti eftirfarandi eftirlýsingu í kjölfar málsins sem nú er leyst:
Grís í óskilum
,,Þau eru ýmis verkefnin sem koma inn á borð lögreglunnar. Nú eru lögreglumenn á Akureyri á leið í Hagahverfi, þar sem tilkynnt var um grís á ráfi inni í garði.
Þeir sem hafa upplýsingar um hver mögulegur eigandi dýrsins gæti verið eru beðnir um að hafa samband við viðkomandi og við lögregluna – gegnum síma 112.“
Helstu atriði úr dagbók LRH frá 05 í morgun til klukkan 17 í dag eru annars þessi:
Lögreglustöð 1
Ökumaður handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Reyndist hafa gerst sekur um slíkt brot áður. Var einnig ekki með gild ökuréttindi. Við tók hefðbundið ferli og var hann laus að blóðsýnatöku lokinni.
Tveir menn handteknir grunaðir um húsbrot og vopnalagabrot. Þeir vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins og verða yfirheyrðir þegar ástand þeirra verður betra.
Ölvaður maður sofandi á almannafæri. Hann vakinn og ráðstafanir gerðar til að koma honum heim til sín.
Þjófnaður úr verslun. Afgreitt á vettvangi.
Lögreglustöð 2
Tilkynnt um eld í ökutæki með eftirvagni. Reyndust vera glæður sem slökkviliðið sá um.
Lögreglustöð 3
Umferðarslys hvar tvær bifreiðar voru skemmdar eftir. Engin slys á fólki.
Annað umferðarslys og tjón á tveimur bifreiðum. Minniháttar slys á fólki.
Ökumaður handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Laus eftir blóðsýnatöku.
Lögreglustöð 4
Maður í annarlegu ástandi aðstoðaður við að komast til síns heima. Við þær ráðstafanir kom í ljós að hann var með ætluð fíkniefni og vopn í fórum sínum.