• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 14. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lægð nálgast landið úr suðvestri

Annað kvöld má búast við suðaustan 8-13 m/s og rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Vindur hefur verið með hægasta móti hjá okkur undanfarið og svo verður áfram í dag. Það verður skýjað að mestu og dálitlir skúrir gætu látið á sér kræla í flestum landshlutum. Hiti víða á bilinu 10 til 15 stig, en getur farið hærra þar sem göt myndast í skýjahuluna og sólin nær að skína.

Svipað veður áfram framan af morgundegi. Síðan nálgast lægð landið úr suðvestri og síðdegis á morgun fer smám saman að væta í vind. Annað kvöld má búast við suðaustan 8-13 m/s og rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu.
Áðurnefnd lægð eflist síðan til miðvikudags. Þá er útlit fyrir sunnan- og suðvestan 8-13 með rigningu víða um land og verður líklega talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu.

Veðuryfirlit
300 km NA af Hjaltlandseyjum er 992 mb lægð sem hreyfist lítið. 900 km VSV af Írlandi er 1024 mb hæð sem mjakast A, frá henni liggur hæðarhryggur til norðurs. V af Hvarfi er 1005 mb lægð sem þokast A og síðar NA.

Veðurhorfur á landinu
Hæg breytileg átt í dag, skýjað að mestu og allvíða dálitlir skúrir.
Hægt vaxandi suðaustanátt eftir hádegi á morgun, 8-13 m/s og rigning sunnan- og vestantil á landinu annað kvöld.
Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Vestlæg gola, skýjað að mestu og lítilsháttar væta öðru hverju.
Suðaustan 5-10 m/s síðdegis á morgun og fer að rigna undir kvöld.
Hiti 9 til 13 stig.
Spá gerð: 25.07.2022 05:03. Gildir til: 26.07.2022 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Sunnan og suðvestan 8-13. Rigning víða um land, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu en úrkomuminna á Norðausturlandi. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á fimmtudag:
Suðvestan og vestan 5-10 og dálítil væta, hiti 8 til 13 stig. Bjartviðri á austanverðu landinu með hita að 18 stigum.

Á föstudag:
Norðaustlæg átt 5-13 og víða rigning eða súld. Hiti 8 til 13 stig.

Á laugardag:
Stíf norðvestan- og vestanátt með rigningu, en styttir upp sunnan- og vestanlands. Kólnar fyrir norðan.

Á sunnudag:
Vestanátt og bjart að mestu, en skýjað vestantil. Hiti 9 til 15 stig.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    226 deilingar
    Share 90 Tweet 57
  • Helgi Pétursson látinn

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?