• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fylgi Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks hrunið – Ríkisstjórnin fallin

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Katrín Jakobsdóttir formaður VG

Ef skoðað er fylgi Vinstri grænna nú og í kosningunum 2017, þá hefur það hrunið. Í kosningunum fengu Vinstri grænir 16,9% fylgi en mælast nú með aðeins 9,7%. Það er hrun upp á 7,2% á fylgi flokksins eða nánast eins og u.þ.b. annar hver kjósandi hafi snúið baki við flokknum og ætli ekki að kjósa hann aftur.
Sama má segja með Sjálfstæðisflokkinn en hann var með 25,2% fylgi í kosningunum og hefur verið að mælast fyrir neðan og rétt um 20% í undanförnum könnunum. Ríkisstjórnin væri kolfallin ef úrslit yrðu, eins og undanfarnar kannanir hafa sýnt s.l. mánuði.
Bjarni Benediktsson

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 21,1%, rúmlega prósentustigi meira en við mælingu MMR í fyrri hluta október. Fylgi Samfylkingar mældist 15,3% og jókst um rúmt prósentustig frá síðustu mælingu. Þá jókst fylgi Flokks fólksins um rúm tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 8,0%.
Inga Sæland

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 42,2%, samanborið við 42,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,1% og mældist 19,8% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,3% og mældist 14,1% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 13,5% og mældist 14,8% í síðustu könnnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,0% og mældist 10,1% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 11,0% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 9,7% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 8,9% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 8,0% og mældist 5,6% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 2,6% og mældist 3,1% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 0,9% samanlagt.
1910 2 Fylgi
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,6%), myndu skila auðu (6,4%), myndu ekki kjósa (2,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
1910 2 Fylgi tími
 
Stuðningur við ríkisstjórnina
1910 2 Studningur

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?