7.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Atvinnuleysi var 5,8% í október

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 5,8% í október 2021 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,2% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 75,5%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 2,3 prósentustig á milli mánaða á meðan árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi dróst saman um 0,2 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur dregist saman um 0,8 prósentustig síðustu sex mánuði og leitni hlutfalls starfandi aukist um 1,9 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar, án árstíðaleiðréttingar, er áætlað að 210.500 (±7.200) einstaklingar á aldrinum 16-24 ára hafi verið á vinnumarkaði í október 2021 sem jafngildir 79,1% (±2,7) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 198.900 (±5.900) starfandi og 11.600 (±3.400) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 74,7% (±3,0) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 5,5% (±1,6). Starfandi unnu að jafnaði 36 (±1,3) stundir á viku í október 2021. Samanburður við október 2020 sýnir að atvinnuleysi dróst saman um 3,2 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 5,7 prósentustig.

Í október 2021 er áætlað að 30.300 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) sem jafngildir 13,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 38,1% atvinnulausir, 18,6% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 10,0% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 33,3% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við október 2020 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 3,7 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðréttur slaki hefur þó aukist lítillega eða um 0,4 prósentustig á síðustu sex mánuðum.

Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Tafla 1. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
  maí.21 jún.21 júl.21 ágú.21 sep.21 okt.21
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 78,5 79,2 78,5 79,1 79,3 79,2
Hlutfall starfandi 73,4 74,3 74,9 75,3 75,7 75,5
Atvinnuleysi 5,6 5,5 5,2 5,1 3,5 5,8
Vinnustundir 34,6 34,8 35,2 34,9 35,2 35,2
Vinnuafl 206.900 209.000 207.400 209.600 210.600 210.700
Starfandi 193.300 196.000 197.900 199.600 201.100 200.900
Atvinnulausir 11.600 11.400 10.700 10.600 7.300 12.200
Utan vinnumarkaðar 57.500 54.800 54.900 55.600 54.500 54.000
Áætlaður mannfjöldi 263.400 263.800 264.300 264.900 265.600 266.000

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir október 2021 ná til fjögurra vikna frá 4. til og með 31. október. Í úrtak völdust af handahófi 1.532 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.492 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 936 einstaklingum sem jafngildir 62,7% svarhlutfalli.