• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Svipti barnsfeður valdi og fór úr landi með börnin án leyfis og vitundar þeirra

Niðurstaða hæstaréttar var að sýkna móðurina af kröfum ákæruvaldsins um refsingu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. nóvember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hæstiréttur kvað upp dóm þann 18. nóvember s.l. í máli þar sem reyndi á hvort ákvæði 193. gr. almennra hegningarlaga yrði beitt gegn móður sem hafði á tilgreindu tímabili svipt tvo barnsfeður sína valdi og umsjá barnanna með því að fara með þau úr landi án leyfis og vitundar barnsfeðranna.

Í máli þessu er ákærðu gefið að sök að hafa svipt feður tveggja barna valdi og umsjá yfir þeim í um sjö og hálfs mánaðar skeið með því að fara með þau af landi brott til […] án leyfis og vitundar feðra þeirra sem hvor um sig hafi farið sameiginlega með forsjá barnanna með ákærðu.
Lagt var til grundvallar í málinu að forsjá foreldra beggja barna væri sameiginleg og höfðu þau lögheimili hjá móður. Í fyrrgreindu refsiákvæði segir að hver sem sviptir foreldra eða aðra rétta aðila valdi eða umsjá yfir barni sem er ósjálfráða fyrir æsku sakir, eða stuðlar að því að það komi sér undan slíku valdi eða umsjá, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt.

Ekki hafði áður reynt á beitingu ákvæðisins við þær aðstæður þegar forsjá foreldra er sameiginleg en í máli nr. 206/2005 hafði rétturinn komist að þeirri niðurstöðu að refsivert væri fyrir það foreldri, sem ekki fer með forsjá barns, að fara með það af landi brott og halda því þar.
Hæstiréttur benti á að í 3. mgr. 28. gr. a barnalaga væri mælt fyrir um einkaréttarlegt úrræði til handa foreldri sem telur á sér brotið með flutningi hins foreldrisins á barni þeirra milli landa.

Ákvæði 193. gr. almennra hegningarlaga væri hins vegar refsiákvæði sem væri einskorðað við brot gegn foreldravaldi yfir barni. Þá væri ljóst af ákvæðum barnalaga og lögskýringargögnum að það foreldri sem barn væri með lögheimili hjá hefði ríkari rétt til að taka ákvarðanir um málefni þess. Með vísan til umfjöllunar um refsinæmi 193. gr. almennra hegningarlaga, inntaks sameiginlegrar forsjár og þeim kröfum sem gerðar eru til skýrleika refsiheimilda var það niðurstaða dómsins að sýkna ákærðu af kröfum ákæruvaldsins.

Dóminn má í heild sinni lesa [hér].

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    221 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?