Bubbi Morthens er samofinn þjóðarsálinni í öllum sínum birtingarmyndum: Stjarnan sem rís úr slorinu; fyrst sem málsvari verkalýðsins, svo alþýðusöngvari þjóðarinnar, þá atómpönkari og gúanórokkari sem breytist í ballöðu-poppara sem syngur með stórsveitum.
Skoðanaglaði gasprarinn, skrifblinda ljóðskáldið, fíkilinn sem reis upp, kvennamaðurinn og sá sem elskar aðeins eina konu, Kúbverjinn og Hollywood-víkingurinn, veiðimaðurinn, friðarsinninn og boxarinn. Sögur Bubba Morthens eru sögur okkar allra; sögur Íslands. En hver er hann í raun og veru? Og hver erum við?
Í þessari stórsýningu leggja leikarar, dansarar, tónlistarmenn og fleiri góðir gestir allt í sölurnar við leitina að Bubbanum í okkur öllum og fylla sviðið með sögum, lögum, ljóðum og litum þessa elskaða og umdeilda listamanns.
Sýningin sem allir verða að sjá!
Í þessum fimm stjörnu stórsöngleik leggja leikarar, dansarar og tónlistarmenn allt í sölurnar við leitina að Bubbanum í okkur öllum.
Tryggðu þér miða á ógleymanlega upplifun, sýning númer 137 var í kvöld og er það almannarómur að það er vel þess virði að sjá hana og við gefum henni 5 stjörnur af jafn mörgum mögulegum. Hægt er að tryggja sér miða á komandi sýningar hér.
Umræða