,,Þetta er orðið betra núna en menn verða að fara varðlega og passa sig, það verður líka að skoða hvað ísinn er þykkur, á sumum vötnum er þetta í fínu lagi“ sagði einn af þeim stundar dorgveiði eins mikið og hann getur. En það verið erfitt í vetur vegna veðurblíðu allavega fyrir áramótin en veðurfarið virðist allavega vera að breytast eitthvað núna uppá síkastið.
,,Við fórum út á Snæfellsnes um síðustu helgi og boruðum nokkrar holur á tveimur vötnum og fengum fisk á báðum stöðum, ekki mjög stóra“ sagði veiðimaðurinn sem reyndi aðeins að dorga um leið og hægt var“
Útiveran er góð og hægt að sjá vötnin frá öðrum sjónarhorni og fleiri staði en á sumrin á dorgveiðum. Þessa dagana er ísinn að verða þykkari og betri til að bora sér holu til að kanna hvort fiskurinn tekur agnið hjá manni. Bara kanna vel stöðuna áður.
Mynd. Guðmundur Bjarkason, leiðsögumaður með flotta bleikju úr Mývatni en veiði hefst þar 1. mars. Mynd: Helgi