• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 9. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

KS má ekki kaupa Gunnars Majoens

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. janúar 2023
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun sinni í dag ógilt kaup Kaupfélags Skagfirðinga (KS) á Gunnars ehf.

Með kaupum KS á Gunnars hefðu runnið saman tveir af stærstu framleiðendum á majónesi og köldum sósum á Íslandi.
Gunnars er eins og kunnugt er sterkt vörumerki í þessum vöruflokki og KS framleiðir og dreifir sömu vörutegundum undir merkjum E. Finnsson og eftir atvikum Vogabæjar, auk þess sem báðir aðilar framleiða þessar vörur einnig fyrir önnur fyrirtæki.
Báðir aðilar selja sömu vörutegundir til dagvöruverslana og stórnotenda.

Að mati Samkeppniseftirlitsins hefði samruninn haft alvarlegar afleiðingar fyrir samkeppni, viðskiptavinum og neytendum til tjóns. Nánar tiltekið snúa skaðleg áhrif samrunans aðallega að eftirfarandi atriðum:

  • Markaðsráðandi staða hefði orðið til á nánar tilgreindum mörkuðum fyrir hreint majónes og aðrar tilbúnar kaldar sósur sem skilgreindir eru nánar í ákvörðuninni. Eru fyrirtækin með mjög sterka stöðu á vörumörkuðum málsins. Þannig hefði sameinað fyrirtæki orðið stærsta fyrirtækið á viðkomandi mörkuðum og með umtalsverða yfirburði yfir helsta keppinaut sinn Kjarnavörur. Þá eru fáir framleiðendur að majónesi hérlendis og hefði þeim fækkað um einn vegna samrunans.
  • Fyrirtækin eru nánir og mikilvægir keppinautar við framleiðslu og sölu á hreinu majónesi og tilbúnum köldum sósum. Með kaupum KS á Gunnars hefði því náinn og mikilvægur keppinautur horfið af sviðinu og þar með það samkeppnislega aðhald sem því fylgir. Aðgangshindranir eru auk þess til staðar sem hindra samkeppni og gera innkomu burðugs keppinautar eða stækkun keppinauta ólíklegri en ella. Þá vegur kaupendastyrkur fárra aðila á dagvörumarkaði ekki upp á móti skaðlegum áhrifum samrunans með fullnægjandi hætti.
  • Skaðleg útilokunaráhrif og lóðrétt samþætting hefði aukist. Fyrir samrunann er Kaupfélag Skagfirðinga lóðrétt samþætt fyrirtæki með fjölþætta og víðfeðma starfsemi. Með samrunanum hefðu umsvif samstæðu Kaupfélagsins og lóðrétt samþætting þess aukist sömuleiðis. Í krafti aukinnar samþættingar og stöðu hins sameinaða fyrirtækis á aðliggjandi vörumörkuðum málsins hefði samruninn haft skaðleg útilokunaráhrif fyrir samkeppni á fráliggjandi mörkuðum, líkt og nánar greinir í ákvörðuninni.

Nánar má lesa um málið í meðfylgjandi grein af vefsíðu Samkeppniseftirlitsins. Þar má einnig nálgast hlekk á ákvörðun eftirlitsins í málinu.

https://www.samkeppni.is/utgafa/frettir/samkeppniseftirlitid-ogildir-kaup-kaupfelags-skagfirdinga-a-gunnars

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Stóra vandamálið á húsnæðismarkaði er skipulagt ofbeldi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Saksóknari handtekinn og færður í fangageymslu

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Gefa einn og hálfan milljarð til Úkraínu

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?