7.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Brot 134 ökumanna mynduð í Reykjavík

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Hraðakstur í Reykjavík

Brot 134 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 20. febrúar til fimmtudagsins 23. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg.

Á rúmlega þremur sólarhringum fóru  19.711 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104. Sjö ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.