FLOKKSRÁÐSFUNDUR MIÐFLOKKSINS
Vetrarfundur flokksráðs Miðflokksins verður haldinn næstkomandi laugardag, 30. mars, í samkomuhúsinu Garðaholti í Garðabæ.
Flokksráðsmenn eru tilnefndir samkvæmt lögum flokksins og hafa tillögu og atkvæðisrétt.
Aðrir flokksmenn sem greiða fundargjöld mega sitja fundinn samkvæmt ákvörðun stjórnar.
Fundargjald er Kr. 3000.
Fundurinn verður opinn fjölmiðlum að hluta (ræða formanns)
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
12:00 Skráning og afhending fundargagna
13:00 Setning fundarins
13:05 Kosning starfsmanna fundarins
13:15 Ræða formanns
14:00 Stjórnmálaályktun kynnt
14:10 Stofnun Ungliðahreyfingar Miðflokksins; Ungir XM
14:30 Umræður
16:30 Fundarslit
Um kvöldið verður kvöldverðarhóf að hætti Miðflokksins í Garðaholti (á sama stað og fundurinn).
Vinsamlegast athugið að drykkir verða ekki seldir á staðnum og því þurfa kvöldverðargestir að koma með drykki með sér.
Matseðill:
Forréttur
Sjávarréttarsúpa bætt með koníaki, ( Rækjur, steinbítur, hörpudiskur) og rjómatoppur.
Kjötréttir.
Hægeldað lambalæri með ferskum kryddjurtum.
Kalkúnabringur hægeldaðar og appelsínugljáðar.
Steikt nautalund (roast-beef) með kryddjurtum.
Meðlæti.
Léttsteikt rótargrænmeti, gratíneraðar og bakaðar sætar kartöflur, djúpsteiktir laukhringir, ferskt salat og ávextir (melónur, ananas, appelsínur, og vínber), sveppa- og bearnaise sósa.
Eftiréttur.
Pana cotta tvenna, kókos og vanilla með karmellusósu og ávaxtasalati
Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk í boði þingflokksins.
Gjald fyrir kvöldverðinn er kr. 6.000 per mann.
Fundargjald er kr. 3.000 per mann. Kaffi og hressing innifalin.
SKRÁNING OG GREIÐSLA:
Þeir sem eru ekki fulltrúar á fundinum samkvæmt reglum flokksins, en hafa hug á að koma sem gestir, vinsamlegast skráið ykkur á fundinn fyrir laugardaginn 30.mars með því að senda póst á midflokkurinn@midflokkurinn.is.
Greiða þarf fyrirfram fyrir kvöldverðinn með því að leggja inná eftirfarandi reikning: 0133-26-013115. Kt: 650609-1740
og senda kvittun á midflokkurinn@midflokkurinn.is. Vinsamlegast athugið að ekki verður hægt að taka við greiðslu fyrir kvöldverðinn á staðnum og greiðsla þarf að berast fyrir föstudaginn 29.mars.