,,Ég ætla að byrja veiðina í Varmá, strax á fyrsta degi og það verður bara fjör, maður klæðir sig bara vel“ sagði Halldór Gunnarsson, en margir ætla að skella sér í veiði um leið og það má byrja þann 1. apríl.
Veðurspáin er frekar kuldaleg fyrstu dagana, skítakuldi víða. En hvað stoppar veiðimenn þegar þeir eru komnir á fulla ferð? Fátt.
Það er víða hægt að veiða fyrir austan fjall, bæði í kringum Kirkjubæjarklaustur og víðar. Við heyrðum í öðrum veiðimanni sem ætlar einnig til veiða, strax á fyrsta degi og hann ætlaði að fara víða og veiða alla páskana og alveg fram í miðjan mánuð og á hverju degi. Honum er líka alveg sama hverning veðurfarið verður.
Menn og konur klæða sig bara vel og klæða kuldann af sér. Aðal málið er sleppa fisknum í vorveiðinni, menn hafa ekkert við þá að gera. Þeir koma aftur, flestir og svo strax næsta haust.
Mynd. Flottur birtingur kominn á land. Mynd Ómar