Um kl. 15:30 í gær fékk lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um slasaðan vélsleðamann við Gimbrarhnjúk í Göngustaðadal í Svarfaðardal. Í kjölfarið voru sjúkraflutningamenn á Dalvík ræstir út sem og björgunarsveitir frá Dalvík og Akureyri. Þá var óskað eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni en vegna annarra verkefna áttu þeir ekki heimangengt í þetta verkefni.
Vel gekk að koma sjúkraflutningamönnum til hins slasaða og eftir að hann hafði verið verkjastilltur var hann fluttur niður á veg þar sem sjúkrabifreið beið hans og var hann síðan fluttur til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun. Ekki er talið að viðkomandi vélsleðamaður sé alvarlega slasaður.
Meðfylgjandi er mynd lögreglunnar úr Svarfaðardal þar sem viðbragðsaðilar voru að gera sig klára í verkefnið.
Umræða