• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Forsetinn þarf að vera öryggisventill þjóðarinnar

Forsetinn þarf að vera öryggisventill þjóðarinnar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Forseti Íslands þarf að geta tekið óþægilegar ákvarðanir, í stað þess að sitja á friðarstól, á örlagatímum. Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, um embættið. Ólafur var gestur Sigríðar Hagalín Björnsdóttur í Silfrinu í gærkvöld og fjallað var um málið á vef rúv.is. Hann gaf til kynna að nauðsynlegt væri að forsetinn væri öryggisventill þjóðarinnar.

,,Ólafur áréttaði að forsetinn gengdi lykilhlutverki í íslenskri stjórnskipan. Margir þekktu hvernig málskotsréttinum hefur verið beitt. Forseti þurfi að vera tilbúinn að veita þjóðinni þann rétt þrátt fyrir harða andstöðu stjórnmálamanna og jafnvel helsta stuðningsfólks.

Þjóðin þurfi að hafa í huga að á örlagatímum geti forseti þurft að taka óþægilegar ákvarðanir til að tryggja lýðræðislegan rétt þjóðarinnar til samstarfs við aðrar þjóðir. Hann sitji því ekki endilega á friðarstóli. Ólafur segir orðið sameiningartákn ekki það rétta til að lýsa forseta Íslands.

Það sé að öðrum þræði búið til af ráðandi stjórnmálastétt í landinu til að halda forsetanum í skefjum. „Og ef þú leggur höfuðáherslu á það að forsetinn sé sameiningartákn þá ertu í raun og veru að segja að hann megi aldrei gera neitt, sem brýtur í bága við vilja ráðherra, Alþingis eða ríkisstjórnarinnar.“

Fólk þurfi að hafa það í huga þegar það gengur að kjörborðinu að forsetinn sé höfuð ríkisins og beri endanlega ábyrgð á því að lýðveldið hafi ríkisstjórn. „Sagan sýnir okkur það hins vegar að það koma þær stundir að enginn sé eftir til að leysa ágreininginn, eða leysa flækjurnar, nema forsetinn,“ sagði Ólafur Ragnar Grímssson í Silfrinu.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?