• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bann við ónauðsynlegum ferðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. apríl 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Dómsmálaráðherra hefur gefið út reglugerð um bann við ónauðsynlegum ferðalögum frá tilgreindum áhættusvæðum, vegna Covid-19 faraldursins. Reglugerðin tekur gildi á morgun 27. apríl og gildir út maí. Til og með 31. maí 2021 er útlendingum, sem koma frá eða dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum á svæði þar sem 14 daga nýgengi smita er yfir 700 á hverja 100.000 íbúa eða fullnægjandi upplýsingar liggja ekki fyrir um svæðið, óheimilt að koma til landsins. Bannið á við alla útlendinga jafnt EES og EFTA borgara sem og alla þriðja ríkisborgara.

Bannið  á ekki við um útlendinga sem hafa fasta búsetu hér á landi, þ. á m. á grundvelli dvalarleyfis eða annars konar dvalar- eða búseturétti, aðstandendur íslenskra ríkisborgara og útlendinga sem búsettir eru hér á landi, útlendinga sem eru í nánu parasambandi, sem staðið hefur um lengri tíma, með íslenskum ríkisborgara eða útlendingi sem er löglega búsettur hér á landi, útlendinga sem geta framvísað vottorði um bólusetningu eða vottorði um að COVID-19 sýking sé afstaðin í samræmi við 6. gr. reglugerðar um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.

Bannið á ekki heldur við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á. m.  eftirtalda aðila:

a. Farþega í tengiflugi.

b. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.

c. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.

d. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.

e. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.

f. Einstaklinga og sendinefndir sem koma til landsins á vegum íslenskra stjórnvalda, starfsmenn sendiskrifstofa og aðra fulltrúar erlendra ríkja, starfsmenn alþjóðastofnana og einstaklinga í boði þeirra sem þurfa að koma til landsins vegna starfsemi þessara stofnana, fulltrúa herliðs, og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð og almannavörnum og fjölskyldur framangreindra aðila.

g. Námsmenn.

h. Einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna viðskipta eða starfa sem eru þess eðlis að þau er ekki hægt að framkvæma síðar eða erlendis.

Umræða
Share7Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvennaathvarf fær 30.000.000 kr. en karlaathvarf 3.500.000 kr.

    Samtök um karlaathvarf -„ekki réttu aðilarnir til að hljóta styrk“

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Kvennaathvarf fær 30.000.000 kr. en karlaathvarf 3.500.000 kr.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • 72,3% ÞJÓÐARINNAR VILL AUKNAR STRANDVEIÐAR – UMHVERFISVÆNAR VEIÐAR

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • 85% ökutækja þegar komin með skráningu á kílómetrastöðu

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?