• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland undirritar nýjan rammasamning við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna

Ísland undirritar nýjan rammasamning við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. apríl 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Nýr rammasamningur um áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) til næstu fimm ára var undirritaður í Genf í gær. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands ásamt Filippo Grandi, framkvæmdastjóra UNHCR.

„Meira en 114 milljónir manna eru nú vegalausar á heimsvísu, og þar af er þriðjungur flóttafólk utan heimalands. Það blasir við að við þessari stöðu verður að bregðast og leggja meira af mörkum til þessa mikilvæga málaflokks. Framlög Íslands nýtast Flóttamannastofnuninni í að styðja við viðkvæmustu samfélagshópana á hverjum stað og veita þeim skjól, lífsafkomu og grunnþjónustu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. „

Samkvæmt samningnum nemur kjarnaframlag íslenskra stjórnvalda til stofnunarinnar að minnsta kosti 200 milljónum króna árlega á tímabilinu 2024-2028. Með samningnum meira en tvöfaldast samningsbundin framlög Íslands til UNHCR. Um svokölluð sveigjanleg framlög er að ræða, en þannig getur Flóttamannastofnunin ráðstafað fjármagninu þar sem neyðin er mest hverju sinni. Samstarfssamningur um ungliðastöður hjá UNHCR er þegar fyrir hendi.

UNHCR stendur vörð um réttindi og velferð flóttafólks, fólks á vergangi í heimalandi sínu, ríkisfangslausra, hælisleitenda og fólks sem snúið hefur aftur til síns heimalands. UNHCR er áherslustofnun í mannúðarstarfi Íslands.

„Ég þakka Íslandi fyrir langvarandi og öflugan stuðning við Flóttamannastofnunina. Framlögin munu hjálpa okkur að bregðast betur við langvarandi og stundum gleymdum krísum“ segir Filippo Grandi, framkvæmdastjóri UNHCR. „Fyrirsjáanleg og sveigjanleg framlög sem þessi eru nauðsynleg fyrir fólkið sem við þjónum. Þau gera Flóttamannastofnuninni kleift að bregðast strax við neyð og veita þeim sem mest þurfa á að halda betri vernd og aðstoð.“ 

Greint var frá því á þriðjudag að samningur við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hafi verið undirritaður í Róm.

Endurnýjun rammasamninga við samstarfsstofnanir í mannúðarmálum hefur haldist í hendur við samþykkt nýrrar þróunarsamvinnustefnu fyrir tímabilið 2024-2028. Auk samninganna tveggja sem undirritaðir voru í vikunni hefur þegar verið gengið frá samningum af þessu tagi við samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna (CERF) og Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA), auk Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC).

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    126 deilingar
    Share 50 Tweet 32
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?