Karlmaður á sjötugsaldri lést skammt frá bóndabæ í Þistilfirði rétt yfir hádegi í gærdag. Maðurinn hafði verið við störf á fjórhjóli úti á túni og komu ættingjar hans að honum þar sem hann lá við hliðina á fjórhjólinu.
Lögregla og sjúkraflutningsmenn voru send á staðinn en einnig björgunarsveitin Hafliði ef á þyrfti að halda. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og úrskurðaði læknir manninn látinn á vettvangi. Rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra er með málið til rannsóknar.
Ekki er greint frá nafni viðkomandi að svo stöddu.
Umræða