Eitt og annað við að vera þennan daginn. Í morgun varð laus eldur í kjallara fjölbýlishúss í Reykjavík og lagði dökkan reyk um stigagang hússins. Náðu allir íbúar að komast út en fimm voru fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar. Slökkvilið mætti á staðinn og bjargaði deginum líkt og þeirra er von og vísa. Ekki er vitað með eldsupptök en málið er í rannsókn.
Aftur var tilkynnt um reyk frá fjölbýlishúsi seinni partinn, en þá reyndist blessunarlega einungis vera um að ræða reyk frá kolagrilli.
Aðili í annarlegu ástandi sást reyna að fara inn í bíla í austurborginni. Var hann horfinn af vettvangi er lögreglu bar að garði, en vitað er hver viðkomandi er. Þá var tilkynnt um konu í annarlegu ástandi í vesturbænum að hafa afskipti af börnum. Fór lögregla á vettvang og gerði konunni að fara til síns heima. Einnig skakkaði lögregla leikinn í verslun í miðbænum þar sem vanstilltur aðili var til ama.
Hestar komu við sögu líkt og oft áður, en í tvígang var tilkynnt um lausa hesta á höfuðborgarsvæðinu. Þá féll maður af hestbaki í einu hesthúsahverfanna, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu alvarleg meiðsli hans voru.
Umferðin gekk þokkalega fyrir sig, þó varð umferðaróhapp í höfuðborginni þar sem einn aðili var fluttur með sjúkrabifreið, en ekki var um meiriháttar slys að ræða. Fjórir ökumenn voru staðnir að akstri á nagladekkjum og tveir sektaðir fyrir of hraðan akstur. Þá voru þrír ökumenn staðnir að akstri eftir að hafa verið sviptir ökuréttindum en sá þriðji var einnig ölvaður. Þá var einn tekinn undir áhrifum vímuefna við akstur.
Barn á grunnskólaaldri var bitið af hundi í Hafnarfirði, í ól hjá eiganda sínum að því er talið er. Lét hundaeigandinn sig hverfa áður en lögreglu bar að og er því ekki vitað hver hann er. Þau viðbrögð þarf viðkomandi að eiga við eigin samvisku en barnið slapp blessunarlega með skrekkinn.
Þá varð harmleikur á Miklubraut seinni part dags, þegar andafjölskylda strunsaði þar yfir í síðdegisumferðinni. Miskunnsamur borgari reyndi sig við umferðarstjórnun á vettvangi, en þrátt fyrir bestu viðleitni varð ein andanna fyrir bifreið og lést. Á vettvang fór sérþjálfaður bifhjólaliði umferðardeildar og tók við umferðarstjórn svo ekki féllu fleiri í valinn þetta síðdegið.