• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stýrivextir lækka um 0,25 prósent

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. júní 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósent og eru stýrivextir því orðnir 3,75%. Stutt er síðan peningastefnunefnd lækkaði síðast vexti, en þann 22. maí voru stýrivextir lækkaðir um 0,5 prósentur. Stýrivextir hafa þannig lækkað um 0,75 prósentur frá undirritun kjarasamninga en meginmarkmið kjarasamninganna var að treysta lífskjör með hækkun launa, lækkun vaxta  og aðgerðum stjórnvalda.
Drífa Snædal, forseti ASÍ segir þetta jákvæðar fréttir sem staðfesti að markmið nýgerðra kjarasamninga um að bæta lífskjör á breiðum grunni hafi gengið eftir. Vaxtalækkun sé mikilvæg fyrir launafólk og efnahagslífið allt og sé enn eitt skrefið í átt að markmiðum samninganna að bæta lífskjör og afkomu fólks.
Með ákvörðun sinni er Seðlabankinn að bregðast við breyttum aðstæðum í efnahagslífi en umsvif í hagkerfinu hafa dregist saman undanfarin misseri. Þar munar mestu um breyttar horfur í útflutningsgreinum en Seðlabankinn spáði í síðustu peningamálum að útflutningur myndi dragast saman um 3,7% á þessu ári. Vöxtur einkaneyslunnar mælist þó enn nokkur en samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar jókst einkaneysla um 2,8% milli ára á fyrsta ársfjórðungi.
Ljóst er að efnahagsleg óvissa hefur aukist og vænta má þess að atvinnuleysi komi til með að aukast með haustinu. Seðlabankinn væntir þess þó að verðbólga sé búin að ná hámarki og komi til með að hjaðna á næstu misserum en tekur þó fram að lækkun gengis krónunnar geti sett strik í þann reikning. Núverandi spá Seðlabankans er þannig að verðbólga  verði að jafnaði 3,2% á þessu ári en samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar mældist verðbólga 3,3% nú í júní.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Vélhjólaslys

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?