• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Engin sætir ábyrgð!

Engin sætir ábyrgð!

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. júlí 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Fjármálaeftirlitið telur að Íslandsbanki hafi EKKI starfað að öllu leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur í verðbréfaviðskiptum við framkvæmd útboðsins.
⛔ Niðurstaða fjármálaeftirlitsins að brot bankans samkvæmt framangreindu hafi verið alvarleg.
⛔ En sektin er eingöngu innan við 20% af hagnaði þessa ársfjórðungs.
Ásta Lóa þingmaður Flokks fólksins skrifar á vef Hagsmunasamtaka heimilanna:

Engin sætir ábyrgð!

„Banki“ getur ekki brotið lög ekki frekar en að bíll geti framið umferðalagabrot. Ef bíllinn ekur of hratt er bílstjórinn að sjálfsögðu sektaður því hann stjórnar bílnum.
Það er alltaf fólk sem brýtur lög, hvort sem það starfar innan banka eða ekur bíl en þegar fólk í banka brýtur lög er bankinn sektaður en það sjálft ber enga ábyrgð.
Þó enn eigi eftir að koma frá FME í hverju nákvæmlega þessi brot fólust, er nógu alvarlegt það sem kemur fram í þessari tilkynningu Íslandsbanka því samkvæmt henni fólust brotin m.a. í

„að viðeig­andi laga­kröf­um og innri regl­um bank­ans um veit­ingu fjár­fest­ing­arþjón­ustu hafi ekki verið fylgt í öll­um til­vik­um við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd útboðsins“

Það á m.a. við um:
  • Hljóðrit­an­ir sím­tala
  • Upp­lýs­inga­gjöf til viðskipta­vina
  • Flokk­un fjár­festa
  • Ráðstaf­an­ir gegn hags­mun­ar­árekstr­um
Þetta er vægast sagt alvarlegt.
Í frétt Mbl segir:

„Íslands­banki hef­ur geng­ist við því að hafa ekki starfað að öllu leyti í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða viðskipta­hætti og venj­ur í verðbréfaviðskipt­um vegna fram­kvæmd­ar á útboði á 22,5% eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­an­um, sem fram fór í mars í fyrra. Bank­inn hef­ur fall­ist á að greiða 1,2 millj­arð króna í sekt vegna máls­ins.“

Bankinn hefur sem sagt gengist við þessu og „fallist á“ að greiða sekt.
Við vitum ekki enn í hverju þessi brot fólust nákvæmlega og ég ætla ekki að hætta mér út í vangaveltur um það.
En ég vil fá að vita hverjir stóðu á bakvið þessi lögbrot.
Hverjir vissu af þeim og/eða gáfu fyrirskipanir um þau?
Ég efast um að „óbreyttir starfsmenn“ taki svona ákvarðanir upp á sitt einsdæmi alveg eins og ég efast um að yfirmenn hafi sjálfir framkvæmt lögbrotin.
Gagnvart yfirmönnum kemur þrennt til greina:
  • Að þeir hafi gefið bein fyrirmæli um verklag sem varðar við lög
  • Að þeir hafi gefið grænt ljós á þetta verklag að tillögu undirmanna
  • Að þeir hafi litið fram hjá verklagi sem varðar við lög
En hversu hátt nær þetta? Var bankastjóranum t.d. kunnugt um þetta?
Hver er ábyrgð hennar og annarra yfirmanna bankans?
Samkvæmt þessari frétt Mbl. um tilkynninguna, virðist hún ekki vera nein.
Bankinn greiðir sekt þegar skaðinn er löngu skeður, sekt sem hefur lítil áhrif á starfsemi hans eða afkomu.
Síðan heldur lífið áfram eins og áður.
Bankinn heldur áfram að græða og fólkið sem að þessu stóð er algjörlega stikkfrí.

HVAÐ HEFUR Í RAUN BREYST FRÁ HRUNI?

Svo verður að ræða stórfelldan hagnað bankans á 2. ársfjórðungi sem er samkvæmt frétt Mbl. 6,6 – 7,3 milljarðar.
Þannig að sektin er um 10% af hagnaði bankans á fyrri helmingi þessa árs og innan við 20% af hagnaði þessa ársfjórðungs.
Ég myndi kalla það vel sloppið, ekki síst með tilliti til þess að þarna er um að ræða hagnað eftir að allur kostnaður, skattar og gjöld hafa verið greidd.
Sektarheimildirnar eru mikið hærri, en þær gætu verið allt að 10% af ársveltu, eftir því sem ég best veit.
Þessi yfirgengilegi hagnaður verður annars ekki að öðru leiti ræddur hér, því hann er efni á aðra grein.
EN HVAÐ HEFUR EIGINLEGA BREYST FRÁ HRUNI?!
Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?