Á tímabilinu frá 05-17 í dag sinnti lögreglan ýmsum fjölbreyttu málum. Alls voru þetta u.þ.b. 50 mál en hér er það helsta:
Um klukkan hálf níu var karlmaður handtekin við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Sá maður hafði losnað úr fangaklefa stuttu áður eftir að hafa dvalið þar vegna ölvunaraksturs. Þegar honum var slepp þá neitaði hann að fara í burtu og kom nokkrum sinnum aftur og hlýddi ekki ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að fara á brott. Hann vann sér inn áframhaldandi dvöl hjá lögreglu.
Rétt fyrir klukkan tíu var tilkynnt um nytjastuld á bifreið. Ökumaður var við vinnu í Hafnarstræti og leit af bifreiðinni í stutta stund og var hún tekin ófrjálsri hendi á meðan. Bifreiðin, lítil hvít Renault sendibifreið, hefur ekki fundist. Klukkan hálf sjö í morgun var ökumaður handtekinn grunaður um ölvun við akstur í Austurborginni.
Um hálf fjögur leitið var maður stöðvaður fyrir búðarhnupl í verslunamiðstöð. Málið var afgreitt á vettvangi.
Rúmlega sex í morgun, var maður handtekinn við innbrot í fyrirtæki í Kópavogi. Maðurinn var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins. Rétt fyrir hádegi var svo tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti. Lögreglan hafði þar afskipti af tveimur mönnum en ekki kom til þess að þeir væru handteknir.
Rúmlega fjögur í dag, hafði lögreglan afskipti af konu í verslunarmiðstöð í Kópavogi en hún hafði þar setið að snæðingi en þega kom að því að borga reikninginn þá hafði hún ekki fjármuni meðferðis.