• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gul viðvörun vegna veðurs – útlit fyrir slagviðri

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Lægð djúpt suður af landi veldur sunnanátt og rigningu á landinu í kvöld og á morgun, og sums staðar sunnanlands gæti rignt mikið. Líkön benda sérstaklega til þess að mikil rigning verði undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli. Þannig má gera ráð fyrir að ár á leiðinni í Þórsmörk og aðrar óbrúaðar ár sem fara þarf yfir t.d. að Fjallabaki verði hættulegri yfirferðar en ella.

Þá er útlit fyrir slagviðri á vinsælum gönguleiðum á sunnanverðu hálendinu og að Fjallabaki og ættu göngu og hjólreiðafólk að skoða spárnar vel áður en lagt er af staða á morgun.

Hiti er almennt 10 til 18 stig, hlýjast suðaustanlands og á Norðurlandi.

Það styttir upp og léttir að mestu til á fimmtudag en á föstudag er næsta lægði í kortunum og gæti hún valdið nokkrum leiðindum, bæði allhvössum vindi og rigningu um allt land á föstudag og laugardag.

Gul viðvörun  vegna veðurs: Suðurland og Suðausturland

Veðurhorfur á landinu

Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og dálítil súld á vestanverðu landinu en líkur á skúrum norðan og austanlands. Gengur í suðaustanátt, 5-13 m/s síðdegis en 8-15 í kvöld og fer að rigna. Talsverð eða mikil rigning við suðurströndina, en úrkomuminna norðaustantil.
Áframhaldandi sunnanátt, 8-13 m/s og rigning á morgun en styttir upp á Vestfjörðum eftir hádegi og víðar á vestanverðu landinu annað kvöld. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 18 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Suðvestan og vestan 5-13 m/s en heldur hvassari norðvestantil. Skýjað og dálítil súld vestanlands og hiti 8 til 13 stig, en bjart með köflum austantil og hiti að 18 stigum.

Á föstudag:
Norðlæg átt, 5-10 m/s en suðlægari austanlands framan af degi. Rigning um allt land en styttir upp sunnantil eftir hádegi. Hiti 8 til 16 stig en svalara fyrir norðan.

Á laugardag:
Allhvöss norðvestan- og vestanátt með rigningu á norðvestanverðu landinu, en annars stöku skúrir. Hiti yfirleitt 5 til 12 stig, svalast fyrir norðan.

Á sunnudag:
Fremur hæg suðvestlæg átt og skúrir, en úrkomuminna austanlands. Hiti 8 til 14 stig.

Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum en stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti breytist lítið.

FLEIRI FRÉTTIR OG SPJALLIÐ ER OPIÐ HÉR

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Líkfundur

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?