• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ný bakteríusýking í hundum – getur smitast á milli dýra og manna

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Matvælastofnun hefur borist tilkynning um grun um Brucella canis bakteríusýkingu í hundi. Grunur um slíka sýkingu hefur ekki komið upp áður hér á landi. Brucella canis er súna, en súna er sjúkdómur sem getur smitast á milli dýra og manna. Tekið skal fram að smit í fólk af völdum Brucella canis er sjaldgæft.

Helstu einkenni sjúkdómsins hjá hundum eru fósturlát seint á meðgöngutíma, andvana eða veikburða hvolpar sem oft drepast fljótlega og bólgur í eistnalyppum hjá rökkum. Helsta smitleiðin milli dýra er pörun en náið samneyti milli hunda getur einnig valdið smiti.

Fáum tilfellum af Brucella canis sýkingu í fólki hefur verið lýst. Einkenni geta verið hiti, hrollur, vanlíðan, lystarleysi, bein- eða vöðvaverkir og eitlastækkanir. Einkennin geta komið fram eftir nokkra daga eða jafnvel mánuði. Þau geta einnig horfið og komið aftur. Börn yngri en 5 ára, ónæmisbældir einstaklingar og þungaðar konur eru talin vera í meiri hættu á alvarlegri sýkingu. Helsta áhættan á smiti í fólk er frá vessum og vefjum við fæðingarhjálp hjá sýktum tíkum. Dýralæknar og hundaræktendur eru því líklegastir að verða útsettir fyrir smiti. Sjúkdómurinn smitast almennt ekki milli manna.

Gripið hefur verið til aðgerða svo sem tilmæla til viðeigandi aðila um heimasóttkví dýra og pörunarbann þar sem við á. Einnig er unnið að söfnun faraldsfræðilegra upplýsinga og sýnatökum. Aðgerðir miðast við að koma í veg fyrir dreifingu sjúkdómsins á meðan beðið er eftir staðfestingu greiningar. Tvær vikur geta liðið áður en endanleg niðurstaða rannsókna liggur fyrir. Búið er að hafa samband við þá aðila sem taldir eru líklegastir til að vera útsettir fyrir smiti og þeim gefnar leiðbeiningar.

Brýnt er að hundaræktendur gæti fyllstu smitvarna við fæðingarhjálp hjá hundum sínum og hafi ávallt samband við dýralækni ef þeir verða varir við einhver óeðlileg einkenni tengd meðgöngu eða goti, eins og fósturláti seint á meðgöngu eða andvana/veikburða hvolpa.

  • Samantekt á Brucella canis frá Alþjóðadýraheilbrigðisstofnuninni og samstarfsaðilum
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?