• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 18. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Leifar fellibylsins Epsilon nálgast landið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings
Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt í dag, en allt að 10 m/s norðvestantil. Skýjað með köflum og þurrt að kalla en lítilsháttar él eða slydduél á Norðausturlandi. Í kvöld nálgast svo leifar fellibylsins Epsilon landið suður úr höfum og þá hvessir úr austri syðst á landinu. Fyrrum fellibylurinn hefur sameinast annarri lægð sem nú eru af svipuðum styrk og vetrarlægð á norðanverðu Atlantshafinu. Nýja lægðin staldrar dálítið við, eitthvað út vikuna. Má búast við að hvasst verði með suðurströndinni, allt að 18-23 m/s undir Eyjafjöllum og austur í Öræfum, frá og með í nótt og jafnvel fram á föstudag. Ferðalangar á þessum svæðum ættu að fylgjast með veðurspám og viðvörunum. Við sleppum við mest alla úrkomuna úr lægðinni sem er talsverð á djúpunum suður og suðvestur af landinu. Annars austlæg átt 8-15 m/s á morgun, hvassast norðvestantil. Lítlsháttar él um norðaustanvert landið, en bjart veður vestantil. Spá gerð: 26.10.2020 06:04. Gildir til: 27.10.2020 00:00.
Veðuryfirlit
Rétt NV af Skotlandi er víðáttumikil 977 mb lægð, sem þokast SA, en yfir N-Grænlandi er 1020 mb hæð. Um 750 km A af Nýfundnalandi er kröpp 975 mb lægð, sem hreyfist NA á bóginn og dýpkar.
Samantekt gerð: 26.10.2020 02:30.
Veðurhorfur á landinu
Austan 3-10, hvassast vestanlands, en 10-15 við suðurströndina og á Vestfjörðum seinni partinn. Skýjað með köflum og þurrt að kalla, en lítilsháttar él eða slydduél norðaustantil. Austlæg átt á morgun, víða 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Bjart með köflum, en lítilsháttar rigning eða slydda á austanverðu landinu. Hiti 0 til 6 stig, en frost í innsveitum á Norður- og Aausturlandi í kvöld og á morgun.
Spá gerð: 26.10.2020 05:02. Gildir til: 27.10.2020 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Fremur hæg austlæg átt, en 5-10 m/s í kvöld. Bjart með köflum og hiti 2 til 7 stig. Austan 8-13 og áfram bjart á morgun.
Spá gerð: 26.10.2020 05:02. Gildir til: 27.10.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Austlæg átt, víða 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Bjart með köflum, en lítilsháttar rigning eða slydda á austanverðu landinu. Hiti 1 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt, 10-18 m/s. Skýjað og lítlsháttar væta norðan- og austanlands, en bjart yfir Vesturlandi. Hiti 0 til 6 stig.
Á fimmtudag:
Stíf austanátt með rigningu um mest allt land, talsverð suðaustan- og austantil. Hiti breytist lítið.
Á föstudag:
Suðaustan kaldi og rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að mestu og bjartara veður norðaustantil. Áfram svipaður hiti.
Á laugardag:
Suðlæg eða suðvestlæg átt, skýjað og lítlsháttar úrkoma, en bjart og þurrt norðaustanlands. Kólnar lítillega.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og vætum um austanvert landið. Annars skýjað, en léttara yfir syðst. Kólnar dálítið.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

    Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    105 deilingar
    Share 42 Tweet 26
  • Barn í lífshættu á þunnri íshellu

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Katrín sér ekki eftir neinu, nema tapinu í forsetakosningunum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Ríkisstjórnin skoðar að slaufa krónunni og taka upp aðra mynt

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?