Jarðskjálfti af stærð 3,7 var staðsettur á Torfajökulssvæðinu kl. 10:02. Skjálftinn var um 8km VNV af Hrafntinnuskerjum.
Rúmlega 10 eftirskjálftar hafa fylgt á eftir, allir undir 2,0 að stærð. Skjálftans varð vart í Fljótshlíð að sögn jarðfræðings.
Jarðskjálfti af stærð 3 mældist á Reykjaneshrygg 25. janúar. Aðfaranótt 26. janúar mældist annar jarðskjálfti 3,0 að stærð, um 3 km NNA af Krýsuvík.
Um 210 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni, svipaður fjöldi og í vikunni á undan. Stærsti skjálfti vikunnar var 2,9 að stærð, þann 14. janúar kl. 17:08, norðaustur af Eyjafirði. Minni virkni var í Öræfajökli, Bárðarbungu og á Suðurlandi í vikunni samanborið við fyrri viku, en meiri á Norðurlandi.