• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Skúli Eggert Þórðarson verður ráðuneytisstjóri

ritstjorn by ritstjorn
27. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Skúli Eggert Þórðarson verður skipaður ráðuneytisstjóri nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis og hefur störf þann 1. febrúar nk. Það er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra sem skipar í embættið. Ákvörðun um flutning Skúla Eggerts í embætti ráðuneytisstjóra er tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild til flutnings embættismanna ríkisins milli starfa.

Skúli Eggert er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti ríkisendurskoðanda frá árinu 2018. Hann var áður ríkisskattstjóri frá 2006 og fram að því skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993.

Samkvæmt tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sem samþykkt var á Alþingi í dag, verður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lagt niður nú um mánaðarmótin. Verkefni þess munu færast að mestu í tvö ný ráðuneyti; menningar- og viðskiptaráðuneyti þar sem mætast málaflokkar menningar, viðskipta og ferðaþjónustu og matvælaráðuneytið með málaflokkum sjávarútvegs, fiskeldis, landbúnaðar, skógræktar og landgræðslu. Þrír málaflokkar færast til annarra ráðuneyta, en orkumál verða í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og iðnaðar- og nýsköpunarmál í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins verður ráðuneytisstjóri í nýju matvælaráðuneyti.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir er ráðherra ferðamála, menningar- og viðskipta og Svandís Svavarsdóttir er matvælaráðherra.

Discussion about this post

  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Boðar nýtt útspil í heilbrigðismálum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?