6.8 C
Reykjavik
Föstudagur - 31. mars 2023
Auglýsing

Meira og betra verknám

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Mennta- og barnamálaráðherra boðar til morgunverðarfundar um stórtæka uppbyggingu starfsnáms í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 2. mars kl. 8:30-10:00 í Nauthóli.

Samkvæmt mati mennta- og barnamálaráðuneytisins á húsnæðisþörf í framhaldsskólum næstu tíu árin mun nemendum í starfsnámi fjölga verulega og nemendum í bóknámi fækka. Áform um uppbyggingu starfsnámsaðstöðu eru umfangsmikil og horfa til lengri tíma til að mæta þessari þörf.

Fundurinn hefst á morgunhressingu og kynningu Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, á áformunum. Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður með fundargestum og fulltrúum skólameistara, framhaldsskólanema, atvinnulífsins, Alþýðusambandsins og ráðuneytisins.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Honum verður streymt á Fésbókarsíðu ráðuneytisins. Þau sem mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig hér fyrir kl. 12 á miðvikukudag, 1. mars: