• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Seðlar

Lántakendur verðtryggðra lána greiddu um 17,4 milljarða aukalega

Fréttatilkynning frá Félagi atvinnurekenda, Neytendasamtökunum og VR

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

Ólögmætt samráð stóru skipafélaganna Eimskips og Samskipa kostaði íslenskt samfélag tæplega 62 milljarða króna á árunum 2008 til 2013. Þar af var kostnaðarauki neytenda 26 milljarðar króna sem rekja má beint til hækkana gjaldskrár skipafélaganna umfram almennt verðlag.

Lántakendur verðtryggðra lána greiddu um 17,4 milljarða aukalega vegna hækkunar vísitölu sem tilkomin er vegna samráðsins, og er það varlega áætlað. Þetta er á meðal niðurstaðna frummats á tjóni vegna samkeppnisbrota Samskipa og Eimskips, sem ráðgjafarfyrirtækið Analytica vann fyrir Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR.

Samráðsbrotum skipafélaganna er lýst ýtarlega í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SE) í máli Samskipa sem var birt í lok ágúst sl. Að mati Analytica leiddi samráðið til þess að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,7% umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir ef gjaldskrár skipafélaganna hefðu haldist óbreyttar að raungildi. Áætlað er að kostnaðarauki fyrirtækja í útflutningi hafi numið um 12,7 milljörðum, viðskiptavina í flutningsmiðlun um 3,7 milljörðum og viðskiptavina í landflutningum um 1,9 milljörðum. Þessar tölur eru á verðlagi 2. ársfjórðungs síðasta árs, um það leyti sem SE birti ákvörðun sína.

Í greiningu Analytica er farið ýtarlega yfir einstaka matsþætti og forsendurnar að baki þeim. Analytica bendir á að gjaldskrár skipafélaga í nágrannalöndunum hafi farið lækkandi á þeim tíma, sem samráðið stóð yfir, en hins vegar hækkuðu þær verulega hjá Samskipum og Eimskipi. Afkoma íslensku skipafélaganna var sömuleiðis mun betri en helstu erlendu skipafélaga á sama tíma.

Mat Analytica er frummat, byggt m.a. á gögnum sem er að finna í ákvörðun SE í máli Samskipa, en ýtarlegra mat á tjóni einstakra viðskiptavina eða hópa viðskiptavina getur átt eftir að fara fram, t.d. vegna skaðabótamála á hendur skipafélögunum.

„Þetta er dýrkeypt og hrikaleg aðför að neytendum, sem ekki má endurtaka. Það væri mikill fælingarmáttur fólginn í að auðvelda neytendum að sækja skaðabætur vegna samkeppnislagabrota, til dæmis með innleiðingu tilskipunar 2014/104/ESB í íslensk lög eða að sett verði sambærileg lög.  Þá þarf að skýra lög og heimildir fyrir almannaheillasamtök að efna til hópmálsókna og gera þær að raunverulegum kosti í svona málum,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.

„Þessar tölur varpa ljósi á það hversu dýrkeypt samkeppnisbrot geta reynst íslensku atvinnulífi. Það er mikilvægt að hafa skilvirkt samkeppniseftirlit, sem upplýsir slík brot, og sömuleiðis að afleiðingar samkeppnisbrota séu þess eðlis að þær fæli fyrirtæki frá slíku athæfi,“ segir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. „Það er þess vegna mikilvægt að fyrirtæki láti reyna á rétt sinn til skaðabóta af hálfu stóru skipafélaganna. Sum fyrirtæki hafa þegar stigið fyrstu skrefin í þeim efnum.“

„Skipafélögin sýndu launafólki og neytendum í landinu algjört virðingarleysi með samráði sín á milli og nú sjáum við hvað það kostaði samfélagið. Þetta undirstrikar enn og aftur mikilvægi þess að efla Samkeppniseftirlitið sem gegnir lykilhlutverki við að verja hagsmuni almennings. Þessi niðurstaða er mikilvægt innlegg í kjaraviðræðurnar – öflugt Samkeppniseftirlit er ein forsenda þess að við semjum til réttlátrar framtíðar“, segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.

Gerast félagi í Neytendasamtökunum

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    124 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    56 deilingar
    Share 39 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?