Hugleiðingar veðurfræðings
Yfir Austurlandi er djúp og víðáttumikil lægð á hreyfingu austur. Í kjölfarið gengur í vestanhvassviðri eða -storm suðaustantil, en annars hægari norðvestlæg átt og slyddu- eða snjóél víða um landið. Hiti víða nálægt frostmarki. Gular veðurviðvaranir vegan hvassviðris eru í gildi fyrir Suðausturland og hríðarviðvörun fyrir Austfirði. Dregur smám saman úr vindi og éljum undir kvöld, en kólnar í veðri.
Lægðin fjalægist landið seinnipartinn og dregur þá smám saman úr vindi og úrkomu. Á morgun er nálgast önnur lægð sunnan úr hafi og snýst þá í austlæga átt með dáliltum él sunnan- og austantil. Talsvert frost víða á landinu. Spá gerð: 27.02.2024 06:30. Gildir til: 28.02.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðvestan og vestan 8-15 m/s í dag, en 15-23 suðaustantil fram eftir degi. Víða éljagangur og hiti kringum frostmark, dregur úr vindi og éljum með kvöldinu og kólnar enn. Austlæg átt á morgun, víða 8-13 og dálítil él, en hægara og skýjað með köflum norðvestantil. Frostlaust syðst á landinu, en frost annars 1 til 12 stig, kaldast norðanlands.
Spá gerð: 27.02.2024 04:57. Gildir til: 28.02.2024 00:00.
Gul viðvörun vegna veðurs: Austfirðir og Suðausturland
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðan 8-15 m/s, hvassast austast. Dálítil él, en yfirleitt bjart um sunnanvert landið og frost 0 til 14 stig, kaldast norðanlands.
Á föstudag:
Norðan 8-15 m/s með él, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 2 til 13 stig.
Á laugardag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en norðankaldi og stöku él með austurströndinni. Áfram kalt í veðri.
Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir austlægar eða breytilegar áttir og víða dálítil úrkoma, en lengst af bjart vestantil. Hægt hlýnandi veður.
Spá gerð: 27.02.2024 09:06. Gildir til: 05.03.2024 12:00.