,,Pólitískt eðli málsins er nú staðfest enn á ný og þurfti ekki frekari vitnanna við“
Í gær gerðu fjórir þingmenn Miðflokksins athugasemd við að til stæði að birta mat svo kallaðrar siðanefndar Alþingis á eigin hlutverki á vef þingsins kl. 19:00 í gærkvöld. Bent var á að annars vegar væri fráleitt að birta álit áður en frestur til að skila andmælum rynni út. Slíkt gengur gegn stjórnsýslulögum. Hins vegar lægju fyrir nýjar og veigamiklar upplýsingar sem sýndu að mat siðanefndarinnar væri byggt á röngum forsendum.
Bentu þingmennirnir á að ekki væri hægt að skilja tilkynninguna og tímasetningu tilkynningarinnar öðruvísi en að með því væri ætlunin að festa siðanefndina í farvegi sem hún hefði komið sér í, á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga.
Fallist var á kröfu þingmannanna og ákveðið að hætta við birtingu greinargerðarinnar. Engu að síður birti ruv.is frétt um málið klukkan 19:20.
Ljóst má vera að Ríkisútvarpið hafi verið upplýst um innihald bréfsins.
Pólitískt eðli málsins er nú staðfest enn á ný og þurfti ekki frekari vitnanna við. Lög og grundvallarreglur sanngjarnrar málsmeðferðar hafa ítrekað verið brotnar við meðferð málsins. Þegar hafa allir meðlimir forsætisnefndar sagt sig frá málinu eftir að hafa gert sig vanhæfa og tveir af þremur meðlimum siðanefndarinnar vikið. Af 10 manns sem upphaflega var boðað að myndu leiða málið til lykta stendur aðeins einn eftir. Sá er fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar.
Ljóst má vera að þau fyrirmæli sem forseti Alþingis, sem þegar hafði viðurkennt eigið vanhæfi, gaf ólöglega kjörnum varaforsetum Alþingis um meðferð málsins réð för án tillits til laga, staðreynda, réttsýni og heiðarlegrar stjórnsýslu.