• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Óheimilt að flytja hunda og ketti til Íslands í farþegarýmum flugvéla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Breyting hefur verið gerð á reglugerð um innflutning hunda og katta, sem m.a. felur í sér að ekki verður lengur heimilt að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla. Nýleg dæmi eru um ólöglegan innflutning hunda sem fluttir voru með þessum hætti og komust þá farþegarnir óáreittir með hundana út í gegnum flugstöðina. Það er alvarlegt brot á þeim innflutningsskilyrðum sem hér gilda.

Breytingin tekur gildi 11. apríl nk. Áfram verður þó heimilt að flytja vottaða hjálparhunda í farþegarými og hunda og ketti sem aðeins millilenda á Íslandi. Hundar og kettir sem fengið hafa innflutningsleyfi, og eru á leið í einangrun á Íslandi, eru alla jafna fluttir til landsins sem frakt eða farangur, eða um 85% dýranna. Þessi breyting hefur því ekki áhrif á stóran hluta hunda- og kattainnflutnings.

Að lokinni innflutningsskoðun á Keflavíkurflugvelli eru dýrin flutt í einangrunarstöð þar sem þau dvelja í tvær vikur. Á meðan dvöl í einangrunarstöð stendur er fylgst með heilsufari dýranna og sýni tekin til rannsókna. Þrátt fyrir að auknar heilbrigðiskröfur fyrir innflutning hafi verið teknar upp árið 2020 er nokkuð um að dýr í einangrun greinist með smit, sér í lagi ýmis sníkjudýr. Í þeim tilfellum er hægt að hefja meðhöndlun og koma í veg fyrir að smitefnin berist í önnur dýr í landinu.

Með þeirri reglugerð sem hér um ræðir er einnig gerð breyting á lista yfir viðurkennd útflutningslönd en það eru lönd sem að mati Matvælastofnunar hafa sýnt fram á viðunandi dýrasjúkdómastöðu og dýraheilbrigðisþjónustu. Með breytingunni færist Singapore upp í flokk landa sem eru án hundaæðis og Bosnía, Hersegóvina, Slóvakía, Ungverjaland og Taívan flytjast niður í flokk landa þar sem hundaæði er haldið vel í skefjum.

Ítarefni

  • Reglugerð um innflutning hunda og katta nr. 200/2020
  • Reglugerð nr. 332/2024 um (4.) breytingu á reglugerð nr. 200/2020 um innflutning hunda og katta
  • Leiðbeiningar um innflutning hunda
  • Leiðbeiningar um innflutning katta
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    114 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Næsta lægð er væntanleg

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Landssamráðsfundur án samráðs – lögregla hunsar karlkyns þolendur ofbeldis

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?