Netin fara úr Ölfusá og Hvítá
Samþykkt var á miklum hitafundi Veiðifélags Árnesinga í gærkvöldi að aðeins yrði veitt á stöng á svæði félagsins sumarið 2019.
Tillaga þess efnis var samþykkt með 88 atkvæðum gegn 66. Lax verður því ekki veiddur í net í Ölfusá og Hvítá sumarið 2019 að því fram kemur í Flugufréttum. Fram kemur að netabændur eru ekki ánægðir með þessa samþykkt og ætli sér að kæra ákvörðunina og leita sér réttar fyrir dómstólum.
Drífa Kristjánsdóttir á Torfastöðum bar upp tillöguna en hún er formaður Tungufljótsdeildar félagsins.
Í samtali við Flugufréttir sagði Drífa að tillagan hefði ekki verið tilkynnt fundarmönnum fyrir fundinn.
„Það hefur ekki verið hefð fyrir því að stjórn félagsins tilkynni sínar tillögur fyrir fram og því sáum við enga ástæðu til þess að gera það.“

Umræða