• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tillaga Arkþings um skipulag Torfunefs hlaut 1. verðlaun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Tillaga Arkþings hlaut fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um nýtt skipulag Torfunefs á Akureyri en niðurstaða dómnefndar var kynnt fyrr í dag í húsnæði Hafnarsamlags Norðurlands.

Í áliti dómnefndar segir m.a. að meginatriði tillögunnar felist í fjölbreyttum útirýmum sem mótuð séu með sjö byggingum, ólíkum að stærð og formi. Byggingarnar myndi húsaröð og aðdraganda að Hofi og gönguleiðin að Hofi sé endurbætt á áhugaverðan hátt. Sérstaklega sé unnið með tengsl við miðbæinn, annars vegar með porti við gatnamót Kaupvangsstrætis sem leggur áherslu á leiðina niður á bryggju og hins vegar með ákveðinni rýmismyndun og áfangastað við nyrðri tenginguna í framhaldi af nýju göturými vestan Glerárgötu.

Formaður dómnefndar, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, skrifar í inngangi að dómnefndarálitinu:

„Á síðustu árum og áratugum hafa skipulagsyfirvöld bæja og borga víða um heim gert sér sífellt betur grein fyrir því gríðarlega aðdráttarafli sem vel skipulögð hafnarsvæði með blandaðri starfsemi hafa fyrir íbúa og ferðafólk. Því hefur mikil áhersla verið lögð á faglega uppbyggingu þeirra verðmætu svæða sem liggja að hafi, sjó eða stærri fljótum.

Hlutverk hafnarsvæða hefur í tímans rás breyst frá því að vera miðstöð ýmis konar iðnaðar sem gjarnan tengist sjósókn eða flutningum á hafi, yfir í að vera blómleg miðstöð mannlífsins í hjarta borga og bæja.

Svæðið í kringum hina gömlu Torfunefsbryggju á Akureyri hefur alla burði til að verða slík miðstöð mannlífsins í bænum með beina tengingu við miðbæinn okkar og Menningarhúsið Hof. Því er afar mikilvægt að horft sé með heilstæðum hætti til framtíðar þegar kemur að uppbyggingu á þessu svæði og vandað mjög til verka.

Það var í þessum anda sem Hafnasamlag Norðurlands, Akureyrarbær og Arkitektafélag Íslands efndu í byrjun árs til opinnar hugmyndasamkeppni um skipulag Torfunefs. Meginmarkmið verkefnisins var að fá fram tillögu að lifandi hafnarhverfi með fjölbreyttri starfsemi í hjarta Akureyrar.“

Dómnefndina skipuðu, auk Ásthildar, Pétur Ólafsson, hafnarstjóri Hafnasamlags Norðurlands, Ágúst Hafsteinsson, arkitekt FAÍ, Árni Ólafsson, arkitekt FAÍ, og Guðrún Ragna Yngvadóttir, arkitekt FAÍ.

Dómnefndarálitið má lesa í heild sinni hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Togarar á strandveiðum

    Togarar á strandveiðum

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    127 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Íslandsbanki: Eru forsendur sölunnar þegar brostnar?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    179 deilingar
    Share 72 Tweet 45
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    69 deilingar
    Share 28 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?