• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 9. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. apríl 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

BSRB, stærstu heildarsamtök launafólks í opinberri þjónustu á Íslandi, leggur áherslu á að ríkið verði að auka við tekjuöflun sína til að unnt sé að efla velferðarþjónustu og styðja betur við barnafólk og tekjulægri hópa, í umsögn sinni um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2024-2028.

“Beðið var eftir þessari fjármálaáætlun með nokkurri eftirvæntingu þar sem fólk er farið að finna verulega fyrir verðbólgunni og vaxtahækkunum á eigin skinni. Það voru því vonbrigði fyrir okkur hjá BSRB að sjá að þessi fjármálaáætlun er hvorki til þess fallin að draga úr verð´bólgunni sem bítur okkur öll, né heldur til að auka velferð og jöfnuð í landinu. Nú er tíminn til að afla tekna hjá þeim sem sannarlega hafa svigrúm til þess að leggja meira til samneyslunnar t.d. sjávarútvegi, stórfyrirtækjum og stóreignafólki.”  segir Heiður Margrét Björnsdóttir, hagfræðingur BSRB.

BSRB leggur áherslu á að:

  • Almannaþjónustan verði efld til að auka velsæld og bæta kjör og starfsumhverfi þeirra sem veita þjónustuna.
  • Tekjuöflun verði aukin hjá þeim sem sannarlega hafa svigrúm til þess að greiða hærri skatta. Með því megi tryggja rekstur opinberrar þjónustu og tryggja sjálfbærni ríkissjóðs. Í þessu samhengi mætti til dæmis nefna hátekjuskatt, eignaskatta, bankaskatt, hækkun fjármagnstekjuskatts og hærri hlutdeild almennings af tekjum fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Það ýtir undir velsæld og jöfnuð og mun skila sér í þróttmeira hagkerfi til lengri tíma.
  • Ríkissjóður styðji við fólk í tekjulægri hópum og heimili með þunga framfærslubyrði með eflingu barna-, húsnæðis- og vaxtabótakerfisins.
  • Stofnframlög verði aukin til að tryggja 1.000 almennar íbúðir árlega og húsnæðis- og vaxtabótakerfin efld svo að byrði húsnæðiskostnaðar tekjulægri hópa verði ekki umfram 25 prósent af ráðstöfunartekjum.
  • Hækka þarf lágmarks- og hámarksgreiðslur í fæðingarorlofskerfinu og brúa umönnunarbilið frá fæðingarorlofi til leikskóla.
  • BSRB leggur ríka áherslu á að allar breytingar á starfsumhverfi starfsfólks ríkisins verði að höfðu samráði við samtök launafólks.

Lesa má umsögnina í heild sinni hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Saksóknari handtekinn og færður í fangageymslu

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Stóra vandamálið á húsnæðismarkaði er skipulagt ofbeldi

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Gefa einn og hálfan milljarð til Úkraínu

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?